Orðmyndalisti
Í listanum eru allar orðmyndir sem fyrir koma í BÍN. Hver orðmynd kemur bara fyrir einu sinni og engin greining fylgir, hvorki orðflokkur né greiningarstrengur. Orðmyndirnar eru því einfaldlega stafastrengir, án tengsla við uppflettiorð.
Athugið að samfall beygingarmynda í orðmyndalistanum er mjög mikið. Hér fylgir dæmi þar sem beygingarmyndir og uppflettiorð eru sýnd fyrir tvær orðmyndir:
| Orðmynd: | Beygingarmynd: | Uppflettiorð: |
| hana | hana ÞFET | hani kk |
| hana ÞGFET | hani kk | |
| hana EFET | hani kk | |
| hana ÞFFT | hani kk | |
| hana EFFT | hani kk | |
| hana ÞFET | hún pfn | |
| öndum | öndum ÞGFFT | andi, no.kk. |
| öndum ÞGFFT | önd, no.kvk. | |
| öndum GM-FH-NT-1P-FT | anda, so. | |
| öndum GM-VH-NT-1P-FT | anda, so. |
Samfall orðmynda eða tvíræðni er verulegt vandamál í flestum tungutækniverkefnum. Greiningarstrengir fyrir orðmyndina minni eru t.d. 30 og uppflettiorðin fjögur, þ.e. nafnorðið minni, lýsingarorðið lítill, sögnin minna og eignarfornafnið minn.